Skiptinemablogg Fjolu ^^
heimkomaFjóla Sigurđardóttir
jæja þá er ég komin heim...ég flaug frá seattle til new york og svo til íslands og tók það alveg nógu langan tíma...
þegar ég kom í Keflavík og sá mömmu, pabba og bjarka hljóp ég til þeirra og knúsaði þau og nokkur tár runnu alveg niður á kinn.
Þegar ég fór út fann ég alveg kuldann haha..
En ég var alveg búin að sakna ferska loftsins. Svo fór ég heim og í dag hitti ég ömmu ellu og Guðrúnu og Magga og svo Dóra, Iðunni og Jökul Braga og svo fór ég í heimsókn til Pöllu, Stjána og stelpnanna og vá alveg geggjað að sjá alla aftur. :D
Ég ætlaði bara svona aðeins að segja að ég væri komin heim svo ég er farin að klára að taka upp úr töskunum... ;)
stutt i heimkomu... og san francisco var geggjad :DFjóla Sigurđardóttir
Ókei, svo ég fékk email frá mömmu um það að ég eigi að fara að blogga um San Francisco... okei...Svo ég hafði algjörlega ótrúlega gaman af San Fran... ég skemmti mér mjög vel!
Ég fór í rútuferð, svona sýningartúr einhvernveginn.... Og þar sá ég fullt af sögulegum hlutum eins og brekkuna sem er svo kröpp eða eikkað, man ekki hvaða orð það var, held að ég sé að búa til orð... haha
En allavega þá sá ég líka alcatraz eða eikkað, fræga fangelsið á eyjunni... en svo fór í í chinatown og fleira...
Ég fór með Patti sem er trúnaðarkonan mín og fjölskyldu hennar. Við fórum á allsskonar veitingastaði og maðurinn hennar sagði mér að segja pabba að ég hafi núna farið á Amerískan sportbar ;) haha en bara til að borða hádegismat og horfa á hafnarbolta... en við vorum á æðislegu hóteli og mér leist mjög vel á staðinn sem við vorum á, en eina sem er við San Francisco er að það er mjög mikill vindur og ég er ekki búin að hafa svona mikinn vind síðan á Íslandi svo það var frekar skrýtið... haha... :D
Svo fórum við á englaeyju og löbbuðum um og svo fórum við til sonar hennar og spiluðum Wii og höfðum gaman :D ég tók fullt af myndum en ég ætla að sýnar ykkur þær þegar ég kem heim ;)
ég var þarna aðeins í 3 daga svo ég gat ekki séð allt en á mánudeginum áður en við fórum heim fórum við að versla soldið :D haha... það var alveg geggjað haha ;) ég fór í H&M en hún er allt öðruvísi hér og í Evrópu... miklu meira eightís hér...
Svo fórum við heim og ég fór í skólann daginn eftir og frumsýndi leikritið okkar :D
Leikritið okkar Zombie prom var alveg geggjað... :D gekk mjög vel og allir höfðu rosalega gaman af því :D ég lék stelpu sem heitir Honey og svo ritara... Þetta var mjög mikill söngur og gleði og fullt fullt af dans... Þetta var tekið upp á video svo ég fæ disk og sýni fólki sem vill sjá þegar ég kem heim... ;)
En talandi um að koma heim!!!!!
Ég kem heim eftir 25 daga!!!! Eða þar í kring ;) vááá þetta er búið að líða svo hratt og ég verð komin heim áður en fólk veit af!!!
Mamma og pabbi eru nú þegar búin að LOFA mér því að þau ætli að fara með mig í ísbíltúr þegar ég kem heim hahahaha :D svo það er ekki hægt að koma sér úr því ;)
ég er byrjuð að finna dót sem ég ætla ekki með heim og ætla að selja á garðsölu þar sem allir hérna eru alltaf með garðsölur... ég ætla líka að senda dót heim svo ég verð ekki með fullt af drasli með mér í töskum á leiðinni heim...
En að öðru...
Í gær var síðasti dagurinn í skólanum svo ég þarf ekki að fara í skólann aftur... Í dag var útskriftarprufa... semsagt við vorum að æfa að labba upp á svið og allt þetta svo á sunnudaginn útskrifast ég :D ég er svoooo spennt :D:D
Um kvöldið förum við í YMCA sem er félagsheimili í oregon og við leigðum það og við fáum pening og gjafir og fáum að nota sundlaugina og púl borð og fullt fullt fleira :D eftir það þegar við förum aftur í Glide klukkan 4 um nótt ætlum við öll að fremja prakkarastrik haha sem er alltaf gert á hverju ári en aldrei það sama...
smá saga: við erum með bílastæði, efra (sem allir elska) og neðra (þá þarf fólk að labba soldið í skólann) efra á að vera fyrir elstu krakkana en juniors og sophomores fara aldrei eftir því og leggja alltaf þar... þau segja ef við komum nógu snemma getum við lagt þarna en annars þurfum við bara að sætta okkur við neðri...
svo klukkan 4 um nótt á mánudagsnótt ætlum við að tjalda og sonna með öllum sem eru að útskrifast þangað til að allir koma í skólann og ætlum að segja þeim að við komum nógu snemma svo þau geti ekki lagt þarna... við erum ekki að leggja neinn í einelti svo við megum gera þetta :D enginn veit af þessu nema við svo þetta verður fyndið ;)
Svo er næsta vika alveg pökkuð og helgin eftir það, 12-14 er líka pökkuð fyrst er útkskrift hjá hóst bróður mínum svo er bbq á 13.. svo 14, fer ég í river rafting aftur með fullt af fólki svo 15 er kveðjupartý fyrir mig svo 17 fer ég til Tennessee í graceland :D til 22... svo 24 er Dorien´s kveðjupartý og svo 25, er AFS thing svo 28 fer ég til Eugene að gera mig til að fara heim.... svo þetta er mjög stutt og aðeins eikkað 3 dagar sem ég er ekki að gera neitt... :O
en ég ætla að fara að enda þetta svo endilega kommenta og ég heyri í ykkur seinna :D
Prom 2009 :DFjóla Sigurđardóttir
Hæhæ allir...Fyrirgefiði mér hvað ég er löt við að láta inn blogg hérna...
En það er svo mikið að gera að ég hef engan veginn tíma eða kannski er ég bara svona löt... :/
En síðustu mánuði hef ég bara verið að gera það venjulega við erum að vinna í söngleiknum Zombie prom og sonna voða gaman :D
En í augnablikinu er ekki mikið sem ég man eftir nema að páskarnir voru alveg fínir ekkert páskafrí samt og geggjad að fá páskaegg frá Íslandi :D
Svo á miðvikudaginnn 22.apríl áttum við öll að fara í íþróttasalinn og það var verið að tilkynna prom court sem er prom prinsessur og prinsar fyrir prom (aðal ballið). Ég var ein af þeim og vá það var alveg geggjaður dagur og geggjuð tilfinning að fólkið í skólanum mínum myndu kjósa mig til að vera ein af 5 stelpum sem gætu orðið prom queen... :D
En svo alla síðustu viku í hádeginu voru allir látnir fara í íþróttasalinn og við í prom court vorum spurð allsskonar spurninga og látin gera allsskonar hluti mjög vandræðalegt en við komumst í gegnum það svo var komið að ballinu...
Svo dagurinn byrjaði þannig að ég vaknaði snemma til að fara í bæinn með vinkonum mínum og láta gera hárið þeirra flott svo fórum við á veitingastað og fengum okkur prom lunch haha og svo skutluðu þær mér á hárgreiðslustofu og ég fékk mína hárgreiðslu fyrir kvöldið eftir hárgreiðsluna sagði konan við mig að hún ætlaði að hjálpa mér með make up ið mitt :P
svo ég var alveg tilbúin og fór heim með Sandy, skellti mér í kjólinn og lét skartið á mig og svo kom Dakota vinur minn sem var date-ið mitt fyrir kvöldið og gaf mér corsage sem er svona blóm til að láta á hendina og ég gaf honum boutiniere eða hvernig sem maður skrifar það og guð ég hafði ekki hugmynd um hvernig maður lætur það á haha... en það tókst á endanum... Við tókum myndir og fórum svo á McMenamins og hittum þar tviburavinkonur minar og Dorien og fengum okkur mat og svo klukkan um 9 fórum við á ballið og vorum klukkutíma of sein en það var ekkert að því... :P
Við fórum inn og Dakota hélt um hendina á mér svona eins og drottning og kóngar gera haha og löbbuðum inn í salinn saman og allir horfa á okkur og öskra og klappa haha eins og ég veit ekki hvað... Við dönsuðum í hálftíma og svo voru allir í prom court beðin um að fara í andyrið og svo var skólastjórinn að tala við krakkana í salnum á beðan við vorum látin vita hvernig prógrammið var... Skólastjórinn kallaði okkur prom court upp í pörum og svo löbbuðum við inn í salinn þar sem allir klappa og eikkað... þegar við vorum öll inn í salnum, talaði skólastjórinn í smá stund og svo sagði hún hver prom drottningin var og hún sagði þetta svona:
I have been waiting a long time to say this name, Fijola S... og svo stoppaði hún og sagði að hún ætlaði ekki að reyna seinna nafnið mitt og allir klöppuðu og öskruðu en hlógu um leið því hún getur ekki sagt Sigurðardóttir XD... ég fékk heilt rósabúnt og kórónu. Svo sagði hún prom king, Dakota Titus... Og Svo þegar við vorum krýnd áttum við að eiga fyrsta dansinn og við dönsuðum þarna svona slow dans haha og allir horfðu á okkur svo við vorum að tala mjög lágt hvort hann ætti að snúa mér í hring eða ekki og ég var svo stressuð ef ég myndi detta eða eikkað en við ákváðum að prufa og hann snéri mér í hring og allir bara váááá og awwww og eikkað haha því kjóllinn minn fór svona smá út þið vitið... og svo ákváðum við enga meiri hringi því þessi gekk vel svo við vildum ekki reyna aftur ef það myndi ekki takast svo vorum við að segja fólki að byrja að dansa því þetta var svo vandræðalegt haha og svo byrjaði annað fólk að dansa og við áttum að fara í andyrið þar sem var professional myndatökukona sem tók myndir af okkur og sonna :P
Svo dönsuðum við og ég gat voða lítið dansað því fólk kom endalaust upp að mér til að segja til hamingju og sonna algjör krútt í þessum skóla... :D
En svo fórum við eftir ballið heim til vinkonu minnar og við vorum nokkrar stelpur þar og horfðum á sjónvarpið og fórum að sofa svo þetta var alveg bara fullkomið kvöld. Ég held að ballilð hafi ekki getað orðið meira fullkomið :D
En svo á eftir að gerast svo margt meira áður en ég fer heim en fyrir þá sem ekki telja niður haha þá eru bara um það bil 2 mánuðir í að ég komi heim :O ég legg af stað heim í næsta mánuði :O :) ekkert smá fljótt að líða...
Mér myndi þykja vænt um, ef þið mynduð kvitta fyrir komunni :)
Komin heim fra DisneyFjóla Sigurđardóttir
Jaeja tha er eg komin heim fra Disneylandi sem var geggjad... :DVid forum tharna nidur klukkan 8 a manudagskvoldi og keyrdum nidur a strond i orange county ;D ekki leidinlegt thad... vid vorum komin thangad um hadegi a thridjudegi
Eftir goda slokun a strondinni forum vid i downtown disney sem er opid fyrir alla. Bara svona budir og veitingastadir og sonna :P
Daginn eftir sem sagt a midvikudaginn forum vid klukkan 8 beint i Disneyland og fyrsta ferdin min var i pirates of the carribean... Madur settist i bat og for i gegnum svona dimm gong sem i leidinni voru fullt af styttum, eda hvernig sem madur kallar thetta, ad tala. Og thetta var alveg mjog raunverulegt.
Svo forum vid i Indiana Jones sem var alveg agaett ekkert hraedilegt samt... En thunder mountain var lika alveg agaett.
Svo thurftum vid ad fara i Mickey's toontown og forum svo baksvids og forum i studio til ad taka upp korinn. Svo eftir thad forum vid aftur i gardinn og forum i Mettlehorn og Space mountain. Thessi tvo eru bestu i Disneyland!
En svo forum vid yfir i California Adventures og fyrsta sem eg og Dorien forum i var maliboomer. Risahar turn sem skyst upp otrulega hratt og fellur svo bara. Mjog hraedilegt ad eg for bara einu sinni i hann... :/
En svo forum vid i staersta russibanann i gardinum sem er California Screamin' og thad var aedi eg for i hann svona fjorum sinnum. :D Madur for mjog haegt i svona 5 sekundur og svo stoppadi hann og taldi nidur 5.4.3.2.1. og svo forum vid svoooo hratt upp naestum 90 gradur og svo beint nidur og svo aftur upp og nidur og i hring og va thetta var alveg geggjad :D
Svo bara skemmtum vid okkur voda mikid tharna og forum svo upp a hotel klukkan korter i 11 og voru allir alveg ad drepast ur threytu. En svo thurftum vid ad vakna aftur klukkan 6 og forum i gardinn aftur klukkan 8 og tha forum vid strax ad syna.... Svo korstjorinn okkar var alveg ad reyna ad peppa okkur upp med thvi ad segja "now you can say you have performed in Disneyland!" haha ekki leidinlagt ha?? ;)
Eftir thad forum vid aftur bara ad skemmta okkur allan daginn og um kvoldid tha saum vid flugeldasyninguna og svo eftir hana hlupum vid thar sem vid vissum ad Mikki Mus myndi verda og vorum fyrst i rodinni til ad bida eftir mikka mus og thetta vorum eg, Dorien og Rachel og vid vorum svo spennt ad vid vorum alveg syngjandi "we love mickey,(clap,clap)we, we, love mickey, og where is mickey, where where is mickey og svo there is mickey there there is mickey. Og Vid bidum i svona halftima og vorum alveg sko ad drepast ur spenningi haha og folk i alvoru stardi a okkur og hlo ad okkur og eikkad haha XD
Trjar 17 og 18 ara stelpur fyrstar i rod ad bida eftir mikka mus ^^ haha
En svo kom hann og vid tokum mynd af okkur med honum :P
En svo forum vid aftur upp a hotel og svafum. En a fostudagsmorgun thurftum vid aftur ad vakna snemma en tha voknudum vid klukkutima fyrr til ad fara i Disneyland klukkan 7 thvi thad opnadi klukkutima fyrr og allir bara oooooo mer langar ad sofa pinu meira...
En neiii korstjorinn okkar var of spenntur ad fara i Disneyland...
:P
Vid vorum i Disneyland fra 8 um morguninn til 8 um kvold i 12 klukkutima... Og thetta var heitasti dagurinn thegar var eikkad um 32-33 gradur uff....
En vid skemmtum okkur bara meira og forum aftur i screamin' og sonna :P
Svo lobbudum vid og saum allt i einu fullt af folki og heyrdum tonlist svo vid akvadum ad tjekka thad og var thad ekki bara high school musical ad syngja haha XD
Svo saum vid oll Aladin songleikinn sem var 45 min og gedveikt skemmtilegt. Andinn var gedveikt fyndinn og thegar Aladin vildi ekki standa vid lofordid sitt ad oska ser ad andinn vaeri laus tha var andinn sar og sagdi:
"You mean! You so mean, that on myspace, Tom won't even be your friend" hahahaha og their sem hafa myspce fatta thetta... ;)
Og svo var Aladin ad reyna ad segja eikkad og andinn stoppadi hann og sagdi : " Talk to the left hand, cause you ain't right." hahahah XD hahahah vid sprungum ur hlatri thegar hann sagdi thetta XD
Thetta var mjog fyndid... :P En svo forum vid i grizzly bear something og thad er vatnsrussibani og gud vid forum 6 saman og thetta er svona hringur sem allir setjast i og vid forum af stad og forum nidur storar brekkur og allir urdu svo rosalega blautir eftir thetta en solin thurkkadi okkur mjog fljott :P hehe
Svo fekk eg mynd af mer med Guffa lika og eiginhandaaritun og sonna :P
En svo eillega bara logdum vid af stad heim og i 16 klukkutima og svo kom eg heim og sofnadi i adra 16 klukkutima eg var svooo threytt...!!!
En eg aetla ad enda thetta herna. Og svo eitt...
Leidinlegt ad segja en myndavelin min virkar ekki lengur svo eg gat ekki tekid neinar myndir :/ en eg fekk ad nota vinkonu minnar myndavel og svo eru myndir hja fleirum vinum minum svo eg fae theirra myndir svo eg laet vita thegar eg get latid thaer a netid ;)
En endilega kommenta eg vil vita hvad er i gangi med ykkur heima ;)
Disneyland here i come !!!! :DFjóla Sigurđardóttir
Hvað segja allir á Íslandi?Fyrir þá sem ekki vita er ég að fara í Disneyland í Californiu á morgun (mánudag) :D get ekki beðið!!!!
Loksins að komast í hitann sem er b.t.w. eikkað um 20 og eikkað gráðurnar. ;)
Jæja þá er loksins leikritið búið og gekk það alveg ljómandi vel ;) haha og ég held að það verði áheyrnaprufur fyrir leikritið eftir um 2 vikur fyrir söngleikinn og vá ég get ekki beðið eftir að upplifa þetta allt aftur ;P
Á föstudaginn þá fórum við út að borða fjölskyldan og svo eftir á var mér skutlað til vinkvenna minna og við hittum fólk og um 9 um kvöldið röltuðum við upp þetta litla fjall í miðri Roseburg sem kallast mount Ebo og horfðum yfir Roseburg allt dimmt og sáum ljósin og þetta var mergjað, ég hef aldrei séð yfir alla Roseburg og þetta var ekkert smá flott. Töldum alla löggubílana með ljósin á og þeir voru a.m.k. 4 eða 5. :P
Eftir þessa ágætu fjallgöngu fórum við á veitingastað og vorum þar örugglega til um miðnætti eða lengur og svo fór ég heim með vinkonu minni og spjölluðum ennþá meira og fórum að sofa, þar sem morguninn eftir þurftum við að vakna snemma til að fara á kóræfingu :P
Laugardag eftir kóræfingu fór ég í bæinn með Dorien, Clöru, Justin, Kathleen og Natalie og gerðum allt og ekkert í bænum. Fórum fyrst á IHOP = International house of pancakes :D og fengum okkur þar pönnukökur og kaffi og namm það var gott :P
Eftir fórum við í kringluna þarna og Wal mart og eikkað bara að eyða tímanum og svo bara gerðum við eitthvað þangað til að það var tími til að fara heim...
Í dag (sunnudag) gerði ég svo sem ekki neitt nema að þrífa og pakka fyrir Disneyland :D haha ójú ég talaði líka við mömmu,pabba, Dóra, Iðunni og Jökul Braga á skype og með webcam og það er alltaf geðveikt gaman :D Svo bara einhvernveginn var klukkan orðin hálf tólf á sunnudagskvöldi...
Jæja loksins get ég farið að tala um Disneyland :D haha svo ég fer á morgun um átta um kvöld og leggjum af stað í 16 tíma keyrslu. Svo þegar við komum þangað á þriðjudags hádegi förum við á ströndina og hvílum okkur þangað til um 6 leytið. Svo förum við að skemmta okkur í Disney... Á miðvikudaginn syngjum við með kórnum og svo fáum við frí alveg í 12 klukkutíma til að skemmta okkur svo það verður geðveikt og sama á fimmtudaginn :D svo á föstudaginn förum við í smástund og leggjum svo af stað og komum heim á laugardags hádegi :) hljómar vel? auðvitað!!!
Svo er ég búin að fá meiri upplýsingar um upptekna maí mánuðinn minn svo:
Fyrstu helgina fer ég til Seattle með Dorien og hitti þá Alexöndru :D
Þriðju helgina fer ég með AFS í river rafting og skemmtilegheit
Fjórðu helgina fer ég til San Francisco með Patti Boyd og ég get algjörlega ekki beðið :D
Svo maí mánuðurinn verður algjörlega topp mánuður fyrir mig :D
En ég hef ekki meira að segja í bili en ég skal algjörlega taka myndir í Disney ef ég get myndavélin mín er eikkað að beila á mér þannig að það getur verið að þær verði eikkað takmarkaðar...
En kommenta takk :D
P.S. vá ef þið lítið til hægri þá sjáiði að talningin þangað til að ég kem heim er komin í tvær tölur :O váááá þetta er að líða svo hratt að það er alveg fáránlegt sko!!! haha...
Sky camp!! whoot !!!Fjóla Sigurđardóttir
Vaaa helgin var aedi!! :D Sky camp, sem er bara utilega med 50 skiptinemum i oregon :DOkei svo eg vil byrja a ad segja til hamingju Sibba og Stebbi!!!! Vaaa hvad mer bra thegar mamma sagdi mer fra thessu :D haha en til hamingju! Og lika hamingju Sibba med afmaelid, thetta hefur verid alveg dundur ammlidagur fyrir thig! ;)
Svo! Leikritid gengur alveg fint... syningar eru a midvikudaginn, fimmtudaginn og fostudaginn og mer hlakkar alveg mjog mikid til :D
En allavega utilegan:
Fostudagur: Logdum af stad i utileguna og komum a stadinn eftir einhverja goda 3 klukkutima... og hofdum bara kosy um kvoldid.
laugardagur: dagskra allan daginn og um kvoldid haefileikasyning, ball og fjor.
Sunnudagur: gera sig klar ad fara heim og forum heim um hadegi og eg for upp i rum og rotadist eg var svo threytt haha.
Svo eg hef eina tilkynningu: Thad er ekki lengur 8 tima munur heldur er thad buid ad breytast aftur i 7 tima mun. Svo thid erud adeins 7 timum a undan mer.
En svo fer eg i disneyland eftir 2 vikur :D jeijjj get ekki bedid!!! :D
Va, thott ad thad se mikid buid ad gerast hef eg ekkert ad segja. :/
Allavega tha aetla eg ad lata myndir inna i kvold svo thid getid sed thaer a morgun allavega a facebook. Kannski eg lati thaer her i kvold lika eda a morgun.
Jaeja, endilega skrifa eikkad skemmtilegt i komment.
Laet thetta duga i bili.
Brjalad ad gera! :DFjóla Sigurđardóttir
Va!!!! Tha er eg ekki buin ad blogga i svoldin tima og hef mikid ad segja!Ballid var alveg agaett, eg rugladist adeins mer i hag thar sem ballid var ekki pretty in pink heldur prom hefur thad skemmtilega thema. Eg var nu ekki lengi tharna en eftir ballid forum vid nokkur i baeinn thar sem foreldrar vinkonu minnar bidu fyrir framan Burger King med geggjada eldgamla hvita bjollu! Sem vinkona min fekk i gjof. Ekkert sma mikill heidur sko ad fa ad vera fyrst med Devin til ad keyra i "nyju" bjollunni. Eftir thetta allt saman forum vid til Megan vinkonu minnar um half 12 leytid og satum thar uti vid vardeld og toludum fram eftir nottu. Svo forum vid inn ad sofa.
Svo a midvikudaginn eftir for eg til Angie til ad gera harid a mer fint og nuna er eg med nokkrar ljosar strypur og svona voda fint eikkad en vid akvadum badar thar sem thetta kom vel ut ad eg faeri enn ljosar!!! Svo a thridjudaginn naestkomandi sem sagt thann 24.februar fer eg aftur til hennar og fae einhvern nyjann pakka i harid og verd semsagt ljoshaerd!!! En samt ekkert crazy legally blond sko bara ljosar en venjulega ;) ekkert sjokk :D
A fimmtudaginn for eg a korfuboltaleik i skolanum og eftir hann gisti eg hja Devin thvi eg thurfti hvort eder ad fara a leiklistaraefingu morguninn eftir svo eftir leiklistaraefingu for eg heim hekk thar um daginn og svo a laugardaginn byrjadi crazy busy helgin min. VALENTINUSARDAGUR!!!! :D
Eg for i mitt fyrsta brudkaup thar sem brodurdottir Sandyar var ad gifta sig og thad var ekkert sma fallegt ^^
Eftir allt brudkaupsstussid for eg heim til Megan thar sem eg var med henni, Devin og Dakota i sma stund horfdum a Scream og eftir thad var mer skutlad til tviburanna (Natalie og Kathleen) thar sem eg hitti Dorien og thar forum vid i heita pottinn og horfdum a biomyndir og vorum med svona ekta ameriskt sleepover thar sem vid vorum med fotanudd og gerdum har a hvor annarri og svaka haha XD.
Daginn eftir semsagt a sunnudeginum fórum við Dorien heim til Clöru og hengum þar allt kvöld og gistum hjá henni og höfðum aftur svona movie night og slúðra og allur pakkinn... svo var ég sótt á mánudeginum (b.t.w. enginn skóli, forsetadagur ;) ) ég var sótt um 1 leytið og ég fór með nokkrum vinum mínum í bæinn og hengum þar í garðinum eða stór grasagarður eða eikkað þar sem fólk fer með krakkana sína í lautaferð og sonna, við hengum þar og fórum niður að á og busluðum eikkað og svo fengum við okkur að borða og fórum í glide, fórum á körfuboltaleikinn þar sem við unnum :D whooo... og fór svo heim að lúlla...
Í gær fór ég með Dorien í AFS uppboðskvöldmat, þar sem fullt af fólki var og við borðuðum kvöldmat, svo vorum við með kynningu á löndunum okkar og svo var keppni um hver gat svarað spurningum frá kynningunum og ég vann :D haha svo ég vann súkkulaði frá Belgíu XD svo talaði ég við íslensku konuna í Roseburg sem ég hitti í fyrsta sinn þarna og hún var svo spennt að sjá kynninguna mína á Íslandi og sjá allar nýju myndirnar og sonna hún hefur ekki komið til Íslands síðan eikkað um 1980 og eikkað...
Oh, og by the way, mamma, hún keypti íslensku peysuna XD haha á uppboðinu fyrir 40 dali sem er um 5000 :) peysurnar hennar mömmu eru alveg sko ekkert smá vinsælar hérna, ég held að hún ætti bara að opna búð hérna og senda peysur til Roseburg ;) bara smá svona vasapeningur ;)
Jæja þá er það eillega bara búið ég vil samt óska Írisi minni til hamingju með afmælið í gær svo til hamingju með að verða orðin 18 ára elskan :*** jeijjj :D
Þá er ég bara búin, það eru ekki mikil plön fyrir þessa helgi ég vona að ég fái allavega að fara í bíó eða eikkað svo ég geri nú eikkað. En læt þetta duga í bili...
Það eru komnar myndir inná facebook ;D ég bjó til 2 myndaalbúm, eitt með myndum frá jan og feb og annað sem ég er safna myndum fyrir mömmu ;) myndir af skólanum og sonna ég læt fleiri þegar ég tek fleiri myndir af bænum ;)
ÓÓÓ eitt að lokum, ég vil segja takk við Dóra og Iðunni fyrir að senda mér myndbandið með video af Jökli og fleirum :D alveg sko ein af topp þremur gjöfum sem ég hef fengið sko! Ekkert smá flott og ég elska kortið :** En ég verð að viðurkenna ég fékk nú alveg nokkur tár sko en það voru ekki heimþráartár meira bara svona gleðitár því það var svo gaman að fá þetta video ;) og takk fyrir nammið haha ;)
Endilega kommenta og segja eikkað fallegt ;) hahah XD
Loksins fć ég ađ ferđast! :DFjóla Sigurđardóttir
Takk fyrir kommentin, ;)
Það er nú alveg frekar mikið búið að gerast...
Ég er búin að tala við pabba og fá samþykki en svona er ferðalagalistinn minn:
Ég fer til San Fransisco með trúnaðarkonunni minni í held ég maí :D
Ég fer til Seattle með Dorien í held ég maí einnig :D get ekki beðið
Ég fer einni bara í næsta mánuði til Disneyland í Los Angeles :D:D:D:D með kórnum svo þar eru flest allir vinir mínir ekkert smáááá spennt :D
Svo fer ég til Tennessee í júní með Host-mömmu... Við förum að sjá graceland og ef fólk sem kannast ekki við það gúgglið það því þar átti Elvis Presley heima :D AWSOME !!!! :D
Þetta eru helstu ferðirnar sem ég ætla mér að komast í á meðan ég er hérna þessa fjóra og hálfan mánuð sem eru eftir...
Jæja... í síðustu viku voru áheyrnaprufur fyrir leikritið og góðar fréttir þar sem ég komst inn :D:D Og ég leik þar D´artagnan´s mom og svo yfir nunnuna XD haha...
Þessa viku eru leiklistaræfingar á hverjum degi og svo er minn hópur sem inniheldur mig, Sarah og Charissa, að berjast við að klára kjólinn okkar þar sem við erum í keppni kallaðri Project Runway... :D Það eru þrír hópar að keppast um besta kjólinn og svo eru þrír dómarar... Kjóllinn þarf að vera tilbúinn á fimmtudaginn þegar hann verður dæmdur fyrir framan allan skólann :D við erum alveg frekar öruggar sko en samt hörð keppni... Læt ykkur vita um hver vann seinna ;)
Á laugardaginn er annað ballið okkar sem er vetrarball... :D Þemað er pritty in pink en ég var of sein að heyra það og keypti bláan kjól... :/ haha en what ever...
Einnig í síðustu viku vorum við Dorien með landkynninguna sem gekk prýðisvel ;) haha... við erum í 7 kennslutímum á dag og þurftum við að segja sömu kynninguna 7 sinnum þann dag... Eftir daginn var ég orðin vel leið á kynningunni hennar Dorien og hún var alveg búin að fá nóg af minni haha... Því við höfðum verið að æfa okkur á hvor annarri fyrir þetta allt... En núna þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því lengur. :D
Á föstudaginn vorum við að taka upp auglýsingu fyrir "klúbbinn" eða hvað sem það heitir, sem ég er í og það er um að ekki taka inn eiturlyf og ekki drekka (A) ;) og ef við vinnum keppnina um allt Oregon þá komum við í Amerísku sjónvarpi og ekki væri það leiðinlegt :D haha.
Restina af helginni var ekkert skemmtilegt í gangi... Bara að slaka á heima... næææææs :)
Ef þið kíkið hér til hliðar þá sjáið þið að það er alveg bara stutt þangað til ég kem heim haha eða allavega svona næstum... :P
Læt þetta duga í bili endilega kommenta því ef það er gaman fyrir ykkur að lesa þetta þá finnst mér svo gaman að lesa kommentin frá ykkur ;)
Yfir og út -------- stelpan í USA
Vááá hálfnuđ međ áriđ :OFjóla Sigurđardóttir
Jæja krúttin mín ég er búin með helminginn af árinu mínu hérna!!! Mér hefur verið sagt þar sem mér fannst það fljótt að líða, þá verð ég komin heim áður en ég veit af...!!!En helgin var alveg fín... Dorien gisti hjá mér á fimmtudaginn... á föstudaginn fór ég með henni og Dakota í bíó að sjá Bride Wars hún er fyndin og skemmtileg svo ég mæli endilega með henni.
En svo á föstudaginn gisti ég hjá Dorien og á laugardaginn vorum við bara eikkað að chilla... Ég nennti ekki heim svo ég gisti bara aðra nótt hjá henni og á sunnudaginn fór ég heim... Gerði voða lítið þetta vara bara voða mikið chill helgi eikkað... En í gær (mánudag) var Martin Luther day svo það var enginn skóli svo ég var bara mest allan daginn að læra undir lokapróf sem var í dag og svo bara eikkað að chilla meira haha...
Mér gekk alveg fínt í prófinu ég held allavega að ég hafi ekki fallið... En hér þarf maður að hafa 6.5 til að ná og það er létt að tapa stigum á löngum spurningum...
Allavega þá á fimmtudaginn er súkkulaði partý hjá AFS haha þar sem Dorien sem er frá Belgíu ætlar að tala og það verður Belgískt súkkulaði á staðnum og sonna ;)
Ég er að fatta hvað það er einhvernveginn ekkert að frétta... :/
Ég fékk póst um daginn sem stóð á congratulation Fjola you have been nominated and chosen to be optimistic og eikkad what ever... svo af því að ég er alltaf jákvæð og sé alltaf góðu hliðarnar á öllu þá fer ég í vinningsmorgunverð ásamt nokkrum fleirum sem unnu á föstudaginn XD haha skemmtileg verðlaun þarna skohh!!
En svo var ég að fá meiri upplýsingar í dag um DISNEY WORLD :D:D:D ég fer semsagt 23.mars og kem heim held eg 28. eða eikkað man ekki og það er bara eikkað að syngja einu sinni eða eikkað og svo megum við bara vera þarna með vinum okkar og skemmta okkur :D
En ég hef ekki hugmynd hvað ég á að segja meira svo ég held að ég láti þetta gott í bili (A)
heyri í ykkur seinna bæjj
Bandaríkjastelpan...
Fyrsta bloggid a arinu :DFjóla Sigurđardóttir
Haejj :D finally annad blogg afsakid bidina ;)En allavega tha eru komnar nyjar myndir :D
Á áramótunum hafði ég það alveg fínt. Dorien kom og var með okkur og host brodir minn Danny kom með leikjatölvu sem heitir Wii og það er ekkert smá gaman þótt mér finnst ekkert gaman í leikjatölvum :D Það er svona skynjari sem skynjar hreyfingu og svo er hægt að fara í keilu og fleira og fjarstýringin er keilukúlan :D og svo sveiflar maður bara og stelpan á skjánum sveiflar :D en svo fór ég í það 3 sinnum og vann alla leikina... :D ég RÚSTAÐI öllum leikjunum meina ég ;)
Fyrir klukkan 12 þá fórum við út á meðan nágrannarnir sprengdu eina litla krúttlega rakettu á spýtu haha :D og það voru allir flugeldarnir sem ég sá :O það eru engir flugeldar á áramótunum bara á 4.júlí því þá eru allir að fagna afmælinu hennar ömmu ;D og kannski líka sjálfstæði Ameríku...
En það eina sem við vorum með voru stjörnuljós þessi litlu sem fólk hérna lætur á kökur þegar einhver á ammli :D og ég þurfti að vera stóra stelpan og kveikja á öllum og ef fólk þekkir mig vel, þá veit það að ég er mjöööög hrædd við svona dót en þarna vara bara að duga eða drepast og kveikja á stjörnuljósum :D og ég var algjört hörkutól og kveikti á þeim og hélt á einu og kveikti á öðru með því og það komu neistar á hendina og krakkarnir voru í sjokki að ég skyldi ekki brenna mig og svo voru þau voða hrædd við þetta :)
Þegar við fórum inn var kveikt á sjónvarpinu og allir tóku glas með sprite og biðu eftir niðurtalningunni í sjónvarpinu. Svo klukkan tólf skáluðu allir og krakkarnir fóru í rúmið og við vorum að spila keilu í Wii :D haha...
En þessi leikjatölva er definitely eitthvað sem ég ætla að spá í þegar ég kem heim ;) því það er hægt að wörka out í þessu tæki líka ;)
En þegar ég var búin að vinna 2 leiki í keilu á móti hóst bróður mínum vildi hann spila aftur því hann vildi ekki viðurkenna tap því hann sagði við mig að ég ætti að vara mig því hann væri óvinnanlegur hahahaha SURE.... !!!
En klukkan var orðin 2 og ég sagði einn leik í viðbót og ég vann hann, fyrirgefðu RÚSTAÐI honum... og ég sagði jæja ég ætla að fara að sofa núna þegar klukkan var orðin 3 og hann sagði eikkað um að ég þorði ekki því ég væri hrædd um að tapa... hmm... held ekki! ;)
En svo á nýjársdag þá fórum við öll á skíðasvæði eða ekki skíðasvæði heldur intertubesvæði og vorum að renna okkur niður brekku á sléttum dekkjum eða svona eins og risvöxnum svörtu gúmmíkleinuhringjum... :)
Svo var svona hóll neðst í brekkunni svo þegar við runnum okkur niður var voða gaman þangað til að þessi hóll kom og þá þaut maður upp í himininn og kom svo niður einvhersstaðar... Ein konan var að filma þetta allt saman og ég var bara að bíða eftir að hún náði einhverju til að senda í America´s funniest videos... (A) En svo fóru tveir í það að skófla þetta niður svo þetta var aðeins meira safe ;)
En svo byrjaði skólinn sem er bara fínt... fínt að hitta alla krakkana aftur og sonna ;)
En get ekki haft þetta lengra núna ég þarf að sjá eikkað sem eitt barnabarnið bjó til handa mér haha ^^
Kvedjur fra Ameriku :D